Kynntu þér nýjar leiðir og nýja flokka hér
- 12 km: Æringjar keppni.
- 12 km: Litla flóaveitan – Samhjól fjölskylduflokkur.
- 43 km: Gaulverjar, B Keppnisflokkur
- 43 km: Stóra flóaveitan, samhjól fjörflokkur
- 66 km: Villingar, A Keppnisflokkur
- 96 km Flóabardaginn, Elite keppnisflokkur
12 km: Æringjar keppni.
Tímatökuflokkur, hugsaður fyrir unga keppendur 12 ára til 16 ára.
• Vegalengd: 12.0 km.
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 18:00
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 3.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 5.500,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann þann 6. júlí 2021
• Þátttökumedalía, grill að keppni lokinni.
• Verðlaun fyrir þrjá efstu í kk og kvk flokki í hverjum árgangi frá 12 til 16 ára.
12 km: Litla flóaveitan – Samhjól fjölskylduflokkur.
Hugsaður sem „Njóta-ekki-þjóta“ flokkur fyrir alla fjölskylduna engin tímataka
Þátttöku medalíur fyrir alla en engin overall verðlaun.
• Vegalengd: 12.0 km.
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 18:05
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 3.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 5.500,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 6. júlí 2021
• Þátttökumedalía, grill að keppni lokinni.
• Allir fá þátttöku medalíu en engin pallaverðlaun.
• Opin fyrir rafmagnshjól
43 km: Gaulverjar, B Keppnisflokkur
Tímataka (hugsaður fyrir nýja keppendur í sportinu)
• Vegalengd: 43.0 km.
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 18:30
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 8.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 12.900,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 6. júlí 2021
• Matur og drykkur í brautinni.
• Vegleg Víkingamóta þátttökumedalía, hressing í brautinni og grill og drykkir að keppni lokinni.
43 km: Stóra flóaveitan, samhjól fjörflokkur
Hugsaður sem „Njóta-ekki-þjóta“ flokkur fyrir alla, tímataka en ekki keppni.
Þátttöku medalíur fyrir alla en engin overall verðlaun.
• Vegalengd: 43.0 km.
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 18:35
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 7.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 11.900,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 6. júlí 2021
• Matur og drykkur í brautinni.
• Vegleg Víkingamóta þátttökumedalía, hressing í brautinni og grill og drykkir að keppni lokinni.
• Opin fyrir rafmagnshjól
66 km: Villingar, A Keppnisflokkur
Tímataka (hugsaður fyrir öfluga keppendur)
• Vegalengd: 66. km
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 19:05
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 8.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 12.900,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 6. júlí 2021
• Vegleg Víkingamóta þátttökumedalía, hressing í brautinni og grill og drykkir að keppni lokinni.
• Vegleg þátttökumedalía, máltíð að keppni lokinni.
96 km Flóabardaginn, Elite keppnisflokkur
Tímataka (Hugsaður fyrir afreks keppendur)
• Vegalengd: 96.0 km.
• Dagsetning: 10. júlí 2021
• Ræsing: 19:00
• Skráningargjald til miðnættis 9. febrúar: 8.900,- kr
• Skráningargjald frá 10. febrúar 12.900,- kr
• Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 6. júlí 2021
• Vegleg Víkingamóta þátttökumedalía, hressing í brautinni og grill og drykkir að keppni lokinni.
• Vegleg þátttökumedalía, máltíð að keppni lokinni.
Hjarta keppninnar verður efst á Árveginum fyrir framan Hótel Selfoss þaðan verða allir flokkar ræstir en keppnin fer fram seint á laugardegi og hjólað er þaðan í austur. Þegar komið er austur að Byko fara keppendur í styttri vegalengdum niður Gaulverjabæjar veg. Þeir sem fara styðst fara Votmúlahringinn en aðrir niður að strönd í gegnum Stokkseyri og þaðan inn á Eyrarbakka og svo í mark á Selfossi. Þeir sem hjóla lengst fara hinsvegar út þjóðveg 1 að Villingaholtsvegi og þaðan niður að strönd um Stokkseyri, Eyrarbakka og svo í mark.
Samningar hafa verið gerðir á milli keppnishaldara og sveitarfélagsins Árborgar um samstarf í kringum keppnishaldið en mikil áhersla er lögð á öryggismál, bæði keppenda og árhorfenda. Þá er einnig í samningum lagður grunnur að sameignlegu markað og kynningarstarfi á keppnishelginni sjálfri en báðir aðilar gera miklar væntingar til þess að keppnin muni laða að gesti sem vilja njóta helgarinnar í Árborg og fylgjast með keppninni um leið. Þá er það einnig markmið beggja að keppnisbrautirnar verði með tímanum vinsælar hjólaleiðir æfingahópa og áhugafólks.