Takk fyrir frábæra keppni!
Salomon Hengill Ultra fór fram í miðbæ Hveragerðis 3. og 4. júní 2022. Þetta er ellefta árið sem keppnin fer fram en utanvegahlaup hafa vaxið gríðarlega í vinsældum á síðustu árum. Alls voru 1138 keppendur skráðir til leiks og áttu allir frábæran dag í Hveragerði.
Ennþá er fjölmenni við mótssvæðið og hlauparar í brautinni. Davíð Rúnar Bjarnason er eini keppandinn í 163 km leiðinni en hann er kominn yfir alla erfiðustu hjalla brautarinnar og virðist ætla að komast í mark fyrir kvöldmat. Hlynur Guðmundsson vann 106 km flokkinn og þegar þetta er skrifað er Sigrún Magnúsdóttir keppandi í 106 km kvennaflokki áætluð í mark á 21 klukkutíma um 19:00 í kvöld. Snorri Björnsson og Anna Berglind Pálmadóttir sigruðu fyrr í dag 53 km keppnina.
Danska landsliðið í utanvegahlaupum kom sá og sigraði og þau röðuðu sér í öll efstu sætin í 26 km brautinni. Max Boderskov og Stine Baekgaard Olsen sigruðu vegalengdina.
Skipuleggjendur þakka keppendum þátttökuna og bæjarbúum velvild og gestrisni á frábærum degi í Hveragerði. Salomon Hengill Ultra 2023 fer fram dagana 2. og 3. júní 2023.
FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR
Friðleifur Friðleifsson Þjálfari utanvega hlaupa landsliðs íslands 892 8650
ALMENN ÚRSLIT eru á www.timataka.net
Hér eru helstu úrslit
106 km í karlaflokki
Hlynur Guðmundsson 13:05:01
Felix Starker 13:17:34
Kjartan Rúnarsson 15:24:21
53 km í karlaflokki
1. Snorri Björnsson 04:48:48
2. Þorsteinn Roy Jóhannsson 04:50:31
3. Sigurjón Ernir Sturluson 04:52:48
53 km í kvennaflokki
1. Anna Berglind Pálmadóttir 05:50:19
2. Hildur Aðalsteinsdóttir 05:55:47
3. Hulda Elma Eysteinsdóttir 06:03:14
26 km í karlaflokki
1. Max Boderskov 01:37:39
2. Christian Norfelt 01:40:32
3. Anders Poul 01:43:59
26 km í kvennaflokki
1. Stine Baekgaard Olsen 01:56:34
2. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 01:59:09
3. Kathrine Hojgaard Hansen 02:00:38
26 km miðnætur-ræsing í kvennaflokki
1. Sonja Sif Jóhannsdóttir 02:16:27
2. Steinunn Leifsdóttir 02:23:54
3. Eyrún Ösp Eyþórsdóttir 02:29:00
26 km miðnætur-ræsing í karlaflokki
1. Reynir Jónsson 02:09:14
2. Kristján Friðgeir Kristjánsson 02:22:16
3. Marteinn Urbancic 02:24:54
53 km miðnætur-ræsing í kvennaflokki
1. Rakel María Hjaltadóttir 07:43:52
2. Gunnhildur Ásta Traustadóttir 08:03:55
3.-4. Bára Hlynsdóttir 08:26:25
3.-4. Jónína Gunnarsdóttir 08:26:25
53 km miðnætur-ræsing í karlaflokki
1. Egill Gunnarsson 06:59:12
2. Klemenz Sæmundsson 06:59:52
3. Arnar Sveinn Geirsson 07:15:22