NOW Eldslóðin dagskrá 2023
Sala er hafin í hið bráðskemmtilega utanvegahlaup NOW Eldslóðin sem haldið verður við Vífilsstaði í Garðabæ þann 2. september. Dagskráin er klár og nú er bara að taka fyrsta skrefið og skrá sig.
Fyrir keppni
Fimmtudagur 31 ágúst 2023
Kl: 18:00-18:30: Brautarfundur í beinni útsendingu á Facebook síðu keppninnar.
Föstudagur 1. september 2023
Kl: 12:00-18:00: Afhending keppnisgagna í H Verslun, Bíldshöfða 9.
Keppnisdagur
Laugardagur 2. september 2023
Vífilsstaðir, Garðabær
Kl: 09:00: Mótssvæði og bílastæði við Vífilsstaði opna.
Kl: 10:00: Ræsing 28 km hlaupara.
Kl: 10:30: Ræsing 10 km hlaupara.
Verðlaunaafhending fer fram þegar fyrstu þrír keppendur koma í mark. Allir fá þátttökumedalíu.
Brautarbingó: Dregið er úr nöfnum allra sem leggja af stað í hlaupið. Vinningshafar eru tilkynntir um leið og þeir koma í mark.
Hlaupið gefur ITRA stig og ITRA punkta.

