Hengill Ultra er stærsta utanvegahlaupakeppni á Íslandi þar sem leiðir fara um og yfir Hengilssvæðið. Styttri vegalengdirnar eru í kringum Hveragerði og upp að Hamrinum sem er gríðarlega fallegur hraunhamar yfir bænum.
Garmin Eldslóðin er utanvegahlaup sem hlaupið er frá Vífilsstöðum í Garðabæ, meðfram Vífilsstaðavatni, inn að Búrfellsgjá, upp að Helgafelli og hringinn í kringum fellið.